Þegar litla systir kom í heiminn

Bókin fjallar um tilfinningar og hræðslu hjá barni sem er að fara að eignast lítið systkini, óttann við að vera ekki lengur aleitt með mömmu og pabba og samband barnsins við ömmu sína. Þetta er raunveruleg reynslusaga barns.

Höfundurinn er leikskólakennari og amma barnsins sem finnst að reynsla barnsins geti hjálpað foreldrum og þeim börnum sem eru í sömu aðstæðum. Hugmyndin er að með lestri þessarar bókar megi skapa umræðu með börnum sem eru að fara að eignast systkini, ná fram líðan þeirra og væntingum og undirbúa þau fyrir það sem er í vændum.

Með bókinni fylgja spurningar sem hægt er að nýta til að skapa umræðu með barninu.

5.499 kr.

20 in stock

Endilega hafið samband ef þið viljið láta árita bókina

Viðskiptavinir

“Stórkostleg barnabók sem ég mæli eindregið með að lesa, börnin sátu dolfallin yfir lestri bókarinnar. Mæli með að lesa fyrir börn sem eru að fara að stíga það hlutverk að eignast lítið systkini. Gott fyrir alla að vera meðvitaðir um tilfinningar sem eldri systkini ganga i gegnum❤️”
Valgerður Ósk Sigurjónsdóttir
“Yndislega hjartnæm bók þar sem höfundurinn skyggnist inn í hugarheim barns sem er nýbúið að eignast lítið systkini. Hann segir frá og sýnir okkur á einlægan og einfaldan hátt hvernig barnshugurinn getur verið og hvaða tilfinningar og hugsanir koma mögulega upp við það að eignast systkini. Bókin getur einnig höfðað til ungra barna sem eiga ekki systkini þar sem á hverri opnu eru skemmtilegar og litríkar myndir. Dóttir mín sem er 1,5 árs og á ekki systkini, finnst mjög gaman að fletta í gegnum bókina. Hún skoðar myndirnar og pælir m.a í ömmunni, stráknum sem fer að gráta og böngsunum hans. Þetta er tímalaus bók sem allir foreldrar myndu njóta góðs af að eiga”
Halldóra Rún berg
“Yndislega falleg bók sem gefur hjartnæma innsýn í þær flóknu tilfinningar sem fylgja því að eignast lítið systkini. Sagan, og ekki síður myndirnar, veita börnum á öllum aldri einstakt tækifæri til að endurspegla eigin reynslu og líðan og spjöldin sem bókinni fylgja nýtast fjölskyldum til að skapa einlægar samræður um það sem á sér stað í hugarheimi barns þegar nýtt systkini kemur í heiminn”
Heiða María Angantýsdóttir
“Dásamlega ljúf og falleg myndskreytt bók sem lýsir vel þeim mögulegum tilfinningum barna sem eru í sömu sporum og drengurinn í bókinni. Vel til þess fallin að undirbúa verðandi eldri systkyni og hvetja til umræðu um hvað koma skal”
Nanna Margrét Kristinnsdóttir
“Þessi bók lýsir vel líðan barns sem er að eignast systkyni. Þarna koma ýmsar tilfinningar barnsins fram eins og ótti, óöryggi, gleði o.fl. Bókin nýtist foreldrum vel sem eiga von á barni og eiga barn fyrir. Hún er fallega myndskreytt, einnig eru spurningar sem hægt er að hafa til hliðsjónar. Ég mæli svo sannarlega með þessari bók”
Arndís Árnadóttir